SAMLEIK styður leikskólakennara
Posted by SAMLEIK on Thursday, August 25, 2011
SAMLEIK styður leikskólakennaraPosted by SAMLEIK on Thursday, August 25, 2011
SAMLEIK styður leikskólakennara
Samtök foreldra barna í leikskólum Kópavogs, SAMLEIK, hvetja deiluaðila til að leggjast á eitt og ná sáttum í kjaradeilu leikskólakennara og sveitarfélaganna áður en kemur til verkfalls á leikskólum. Gríðarlega mikið er í húfi fyrir sveitarfélögin í landinu og faglegt starf með börnum á leikskólum. SAMLEIK styður leikskólakennara í kjarabaráttu þeirra og leggur áherslu á að kjör þeirra taki mið af sambærilegum störfum til að tryggja að á leikskólunum starfi faglegt og hæft starfsfólk á hinu mikilvæga fyrsta skólastigi. Nánari upplýsingar veitir: Friðrik Friðriksson, formaður SAMLEIKS
|